Personuverndarstefna | Kubbabúðin.is

Persónuverndarstefna Kubbabúðarinnar

Persónuverndarstefna okkar gildir um allar þær persónugreinanlegar upplýsingar sem fyrirtækið kann að safna gegnum vef okkar eða með öðrum rafrænum samskiptum.

Kubbabúðin, kt. 600209-0270 hlítir lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga ná ekki til lögaðila.

Kubbabúðin hefur persónuvernd og öryggi að leiðarljósi í allri meðferð upplýsinga um viðskiptavini sína og ber ábyrgð á þeim gögnum sem fyrirtækið safnar.

Kubbabúðin selur aldrei persónugreinanlegar upplýsingar um viðskiptavini sína.

Kubbabúðin leitast við að takmarka vinnslu persónugreinanlegra upplýsinga og safnar ekki ónauðsynlegum upplýsingum um viðskiptavini sína né starfsmenn. Gildir það um heimsóknir á vef okkar og önnur rafræn samskipti.

Þú getur lesið þér til um réttindi þín á vef Persónuverndar.

Hvernig safnar Kubbabúðin upplýsingum um þig?

Þegar þú nýtir þér vef okkar – www.kubbabudin.is - þá getur þú þurft að gefa upp tilteknar upplýsingar og einnig verða til upplýsingar um heimsókn þína.

  • Dæmi um upplýsingar sem þú gefur upp eru nafn, kennitala heimilisfang, netfang, símanúmer, greiðsluupplýsingar og greiðslukortaupplýsingar*.
  • Dæmi um upplýsingar sem verða til við heimsókn þína eru persónugreinanlegar upplýsingar á borð við nafn, kennitala, netfang og símanúmer. Landfræðilegar upplýsingar (hvar þú ert stödd/staddur), tungumálastillingar, vafrastillingar og IP tala.

Án þessara upplýsinga getur Kubbabúðin ekki uppfyllt óskir þínar um viðskipti og þjónustu.

Með hverjum deilir Kubbabúðin persónuupplýsingum þínum?

Kubbabúðin selur ekki undir neinum kringumstæðum persónuupplýsingar um þig. Kubbabúðin miðlar einungis persónuupplýsingum til þriðju aðila þar sem sem slíkt er skylt samkvæmt lögum eða ef um er að ræða þjónustuveitanda sem ráðinn er af hálfu Kubbabúðarinnar til þess að vinna fyrirfram ákveðna vinnu. Sem dæmi má nefna:

  • Yfirvöld, s.s. stjórnvöld, dómstóla og löggæsluyfirvöld
  • Lánshæfisfyrirtæki og fjármálastofnanir
  • Innheimtufyrirtæki
  • Þjónustufyrirtæki í samstarfi við okkur

Við deilum upplýsingum einungis með þriðju aðilum skv. vinnslusamningi þar sem kveðið er á um meðferð og öryggi persónuupplýsinga, nema lagaskylda kveði á um annað. 

Skilmálar vafrakaka

Vafrakökur eru litlar textaskrár, nokkurs konar fótspor sem vistast í tölvu notandans. Þær eru notaðar til að bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu til samræmis við auðkenninguna ásamt því að greina heimsóknir á vefsíðuna.

Aðrar vefsíður eiga ekki að geta lesið upplýsingarnar sem eru geymdar í textaskránni. Með notkun vafraköku öflum við vitneskju um notkun á vefnum og hvaða efni notendur skoða og getum því aðlagað vefinn betur að þörfum þeirra.

Með því að samþykkja skilmála um notkun á vafrakökum er okkur m.a. veitt heimild til þess að safna og greina upplýsingar eins og t.d.:

  • Fjöldi gesta og fjöldi innlita frá gestum
  • Lengd innlita gesta
  • Hvaða síður innan vefsins eru skoðaðar og hversu oft
  • Hvaða stýrikerfi og vafrar eru notuð til að skoða vefinn
  • Hvaða leitarorð af leitarvélum vísa á vefinn
  • Hvaða vefsvæði vísaði notanda á vefinn
  • Hvenær dagsins vefurinn er skoðaður

Allar upplýsingar sem kökurnar gefa okkur eru nafnlausar og eru engar persónulegar upplýsingar vistaðar. Engum upplýsingum er deilt með þriðja aðila.

Í flestum vöfrum er hægt að breyta öryggisstillingum svo að þeir taki ekki á móti kökum. Einnig á að vera hægt að eyða þeim. Nánari upplýsingar um hvernig það er gert má finna í stillingum flestra vafra. Nánari upplýsingar um vafrakökur.

Réttur þinn

Þú átt rétt á að fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem við kunnum að hafa um þig. Þú getur líka í sumum tilvikum átt rétt á að upplýsingar verði leiðréttar eða þeim eytt.

Ef þú vilt fá upplýsingar um persónugreinanlegar upplýsingar sem við kunnum að hafa um þig getur sent okkur tölvupóst á Kubbabudin@kubbabudin.is

*Kubbabúðin geymir aldrei kortaupplýsingar og fær einungis upplýsingar um hvort að greiðsla hafi tekist eða ekki frá greiðslumiðlun.